Af vandræðum Ryndísar og Borra
Síðustu dagar hafa farið að nokkru leyti í pælingar um tryggingamál, sérstaklega varðandi ökutæki. Unglingarnir í Kanada hafa fest kaup á forláta bíl sem kostaði örugglega minna en aleiguna þeirra. Ég man ekki tegundina (líklegast Ford Pinto) en árgerðin er ca. 1992. Þetta ætla þau að nota til að koma í heimsókn til oss í Texas. Ekki þarf að velkjast í vafa um að þetta verður spennandi ferð því með aðstoð tölvu reiknast okkur til að þetta séu rúmir 2,800 kílómetrar. Það er kannski eins og tveir sunnudagsbíltúrar frá Reykjavík til Vopnafjarðar og til baka. Þar sem þau eru hins vegar ekki á leið til Vopnafjarðar geta þau keyrt í gegnum borgir á borð við Toronto, Detroit, Chicago, Memphis og Little Rock á leiðinni til Dallas. Það er þó ekki víst að það henti því mér skilst að heillandi þyki að aka hina sögufrægu Route 66. Það er samt sýnd veiði en ekki gefin því þessi þjóðvegur er ekki til lengur nema sem hluti af öðrum vegum, að mestu leyti.
En, já, tryggingarnar. B&O hafa enn ekki tekið bílpróf í Kanada enda kannski engin ástæða til ef maður ætlar ekki að keyra. Þá má bara notast við íslenskt ökuskírteini ef maður þarf að sýna slíkt. En fyrst þau ætla að keyra þá þarf að hafa bíl og hann hafa þau fengið. Hins vegar er ekki snjallt að keyra bíl án þess að hafa fyrir hann tryggingu og þar liggur hundurinn grafinn í kúnni. Slíkt er ekki gott að fá án þess að hafa kanadískt ökuskírteini og þar sem Kanadingar vilja hafa reglu á hlutunum er ekki hægt að valsa inn á hina kanadísku umferðarstofu og heimta ökuskírteini samdægurs. Það er nokkurra vikna bið eftir slíku og þegar að því er komið verða jólin löngu búin og þar með jólafríið og allt komið í voða. Þá er hætt við að bíllinn fíni komi að litlum notum nema verða til vitnis um það hversu vel LÍN hlúir að íslenskum stúdentum með því að standa ónotaður úti á plani. Það er óneitanlega dálítill stíll yfir því að geta sagt: "Æ, ég þarf ekkert að nota hann. Ég átti afgang af námslánunum og mig langaði bara til að eiga bíl. Svo er þetta líka fjárfesting, skilurðu, því svona bílar hækka bara í verði."
Til að koma í veg fyrir það að Pintóinn ógurlegi verði að minnismerki um Gunnar Birgisson og aðra þá sem stjórna Lánasjóði Íslenskra Námsmanna er nú mikil vinna í gangi til að fá bílinn skráðan í Texas. Trikkið er að bílinn fái að búa á Gulrótargötu þ.a. hægt verði að tryggja hann í Texas og gera bílabröskurunum kleift að bruna á sífellt ódýrara bensíni suður á bóginn og taka þátt í jólahaldi hjá vinum og fjölskyldumeðlimum. Tíminn líður hratt og því þarf að hafa snör handtök við að senda pappíra fram og til baka og tala við rétta fólkið. Ef eitthvað réttlæti er til í þessum heimi þá mun þetta reddast fljótlega og mikið stuð verður um jólin.

2 Comments:
þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið. mér finnst best að hinn almenni lesandi gæti haldið að þetta sé eitthvað grín, en þetta er mjög nærri sannleikanum. ég býst samt við að þetta reddist á ögurstundu...
By
Anonymous, at 3:40 PM
Já get sagt ykkur allavega að þau koma, Bryndís og Orrmundur og ætla að leggja af stað á laugardaginn næsta. Orri skrambi klár að ná þessum prófum. Hlakka mikið til að fá ykkur:O)
By
Anonymous, at 1:23 PM
Post a Comment
<< Home