Réttlætið sigrar!
Já, réttlætið það sigraði að lokum og þótt Orri hafi ekki þurft að hengja neinn upp í næsta tré, eins og var gert við Svarta-Pétur forðum, þá sýndi hann þessum kanadísku pappírspésum í heimana tvo! Ef ég man rétt er hætt að veita bjartsýnisverðlaun Bröstes, kannski vegna þess að ekki fundust neinir bjartsýnir Íslendingar, en nú er full ástæða til að taka þennan sið upp aftur. Ég kalla það bjartsýni og þrautsegju á ögurstund að hafa vippað sér á umferðarstofuna í Orrawa og beðið þar eins og keppandi í störukeppni allan daginn, fullviss um að einhver myndi ekki mæta í prófið. Það kom auðvitað á daginn að síðasti próftakinn mætti ekki og Morrinn stökk inn og kláraði prófið með vinstri og bundið fyrir augun. Ég get rétt ímyndað mér sigurgólið og dansinn sem stiginn var.
Þetta þýðir það hægt verður að tryggja bílinn á mánudag og Gunnar Birgis verður að láta tónlistarhúsið í Kópavogi duga sem minnismerki um sig.
Talandi um minnismerki; ef mér tekst að læra betur á þetta blogg apparat gæti vel verið að ég geti birt hér mynd af minnismerki einhvern tíma á næstu misserum. Næstráðandi á Gulrótargötunni var sendur af vinnuveitanda til Washington D.C. og látinn vera þar í viku. Vosuton er áhugaverð borg og þrátt fyrir agalegan kulda komust nokkrar gönguferðir á dagskrá og það verður að segjast eins og er að það er dálítið tilkomumikið að sjá allar þessar byggingar og minnismerki sem maður hefur svo oft séð í fréttum og útlendum hasarmyndum. Úrvalið af veitingastöðum er gríðarlegt og ekki eru þeir nískir á skammtana þar.
Vonandi verða skammtarnir ekki heldur sparaðir í kvöld. Í kvöld er nefnilega jóladinner hjá Hotsos og ef tilgangurinn með honum er ekki að borða þar til vélindað er orðið fullt þá veit ég ekki hvers vegna maður ætti að fara á slíka samkomu. Reyndar er eitt dálítið spúkí og það er að leiðarlýsing sagði að útfararstofa væri við hliðina á veitingastaðnum. Ef maður á bæði fyrirtækin, er þá ekki komin þar eilífðarvél? Úff, ætli maður taki ekki bara með sér nesti í kvöld.

2 Comments:
já þetta er kannski nýjasta trendið í USA. T.d.í borg fyrir feita,man ekki alveg hvað hún heitir,en allavega er langur biðlisti að fá að búa þar. Þar er ein útfararstofa á hvern veitingastað og íbúarnir skipta ekki mörgum þúsundum takk fyrir.:) Njótið vel matarins og verið vel að ykkur í skyndihjálp þarna í Ameríkunni ;).Kær kveðja úr firðinum,Sigrún Skúlad.
By
Anonymous, at 6:06 AM
Loosen [url=http://www.greatinvoices.com]invoice online[/url] software, inventory software and billing software to create competent invoices in bat of an eye while tracking your customers.
By
Anonymous, at 3:30 AM
Post a Comment
<< Home