Heimsyfirráð
Í gær sendi einn vinnufélagi minn mér frétt af vef NBC þar sem talað er um kaup FL Group á hlut í fyrirtæki sem heitir AMR. Þetta AMR fyrirbæri hefur höfuðstöðvar sínar hér á svæðinu og á nokkur flugfélög, þar á meðal American Airlines sem er stærsta flugfélag í heimi ef miðað er við fjölda farþega. Það er vissulega eftirtektarvert þegar íslensk fyrirtæki meika það í fréttir erlendis en oftast eru þetta einangruð tilvik sem skjóta upp kollinum þegar einhver starfsmaður á fréttastofu hnýtur um svona lagað eða finnst spennandi að tala um álfa, eskimóa og dverga eða aðrar verur sem finnast bara í þjóðsögum.
Hins vegar brá mér eilítið þegar ég hlustaði á fréttir á National Public Radio á leiðinni heim úr vinnu í gær. Þar var einnig talað um þessi kaup Íslendinga á AMR og fyrst ég heyri af þessu tvisvar sama daginn hlýtur þetta að vera stórmerkilegt. Auðvitað er mjög merkilegt að í stað þess að búa í moldarbing og eta skreið séu synir Íslands farnir að búa í villum og eta upp fyrirtæki erlendis en það gefur þessu aukið vægi að fá þetta svona beint í æð í fréttum hér. Þetta vekur líka upp spennu því ég get ekki ímyndað mér annað að fljótlega verði komið á beinu flugi milli Keflavíkur og DFW-flugvallarins, minnst tvær ferðir á dag.

1 Comments:
Ísland á eftir að taka yfir heiminum einn góðan veðurdag, þá verður Dabbi kóngur, kórónan getur þá falið krullurnar sem virðast nú vera að liðast úr honum svona á elliárunum. En ég hef tekið eftir þessu hér líka, les í blöðunum um Baug, vinkona mín er að vinna í fatabúð hérna og nýju eigendurnir voru að koma í heimsókn, voru það þá ekki helbúnir Víkingar beint af Íslandinu.
By
Anonymous, at 4:31 AM
Post a Comment
<< Home