Fréttir frá Gulrótargötu

Sunday, October 08, 2006

Öll dýrin í skóginum

Í dag fannst geisladiskur með ævintýrum dýranna í Hálsaskógi og hefur hann verið í spilun meðan heimalærdómi var sinnt og Yatzhee leikið. Það var ágætt að rifja upp lögin sem íbúar skógarins samþykktu því ég ætla nú að setja svipuð lög hér í Gulrótaskógi. Greinar 1 og 3 verða sennilega samþykktar í fyrstu umræðu en þær fjalla um að öll dýrin eigi að vera vinir og að þeir sem eru latir og nenna ekki að afla sér matar megi ekki taka mat frá öðrum. Hins vegar ætla ég að koma annarri grein í gegn með smávegis breytingum frá því sem samþykkt var í Hálsaskógi og skal hún hljóða svo:

  • Ekkert dýr má vekja annað dýr (nema það eigi að mæta í skólann).

Ég tel víst að góður meirihluti kjósenda sé fylgjandi tillögunni en það gæti sett strik í reikninginn að hver og einn hefur neitunarvald og þar liggur hundurinn grafinn: ákveðinn minnihlutahópur gæti gefið frat í hvað öðrum finnst og mun sennilega standa fast á þeirri kröfu sinni að fá að stunda uppvakningar á hvaða tíma sólarhrings sem er. Það gæti alveg farið svo að önnur grein kæmist ekki í gegnum atkvæðagreiðslu fyrr en eftir marga mánuði.

Litli tannlausi þrjóturinn (jæja, hann hefur tvær tennur) gerði mér lífið leitt síðustu nótt og eftir að hann gafst loksins upp fyrir mútum og stærðarmun um klukkan fjögur var Óli lokbrá búinn að hafa sig á brott og engin leið til að sofna aftur. Því horfði ég á upptöku af formúlunni (húrra fyrir tækniundrinu) og las í bók til klukkan níu í morgun þegar augun loks skelltust aftur með háum dynk. Ég reyni að ná orku úr sólskininu hér fyrir aftan hús og hvílast en hljóðabelgurinn þarf greinilega að tjá sig mikið og hátt þ.a. hvíld verður sennilega að bíða þar til dýramamma kemur heim úr verslunarleiðangri.

1 Comments:

  • Ef þessar reglur myndu nú virka, þá væri þetta sko ekki vitlaus hugmynd, langt síðan að maður hefur fengið að sofa heila nótt ótruflaður. "Geysp"

    By Anonymous Anonymous, at 8:09 AM  

Post a Comment

<< Home