Gúrkutíð
Það er dæmalaust hvað Texas-búar virðast leggja á sig til að bjóða okkur velkomin og láta okkur líða vel hérna. Nýjasta tiltæki þeirra er að útvega ausandi rigningu á afmælisdaginn minn og örlitla gjólu. Ef þetta minnir ekki á íslenskt haust þá veit ég ekki hvað gerir það.
Í dag virðist letin ætla að ráða ríkjum. Fyrir utan að hafa tekið aðeins til í garðinum í morgun hefur fátt verið afrekað annað en að róta í myndasafninu. Á eftir fara nokkur sýnishorn af því sem fannst þar.

Oft leggjum við leið okkar í Target-verslarnir. Í þeim fæst næstum allt milli himins og jarðar og því hægt að redda í einni ferð sem vantar á heimilið í stað þessar að þurfa að fara í margar verslanir. Önnur ástæða fyrir að fara í Target er að það getur verið stórskemmtilegt. Áður hefur verið birt mynd af skemmtilegum merkingum á hurðum hjá þeim og þessi tvö skilti vöktu mikla ánægju hjá mér en jafnframt vægar áhyggjur. Ef það þarf að taka sérstaklega fram að matur innihaldi næringu, hvað er þá í öllu hinu sem við höfum verið að kaupa og láta ofan í okkur?

Hvað gerir maður ef pabbi manns er heimsfrægur, stundar hættulega vinnu í þokkabót og er fjarri heimilinu öllum stundum? Ætli maður vilji ekki bara finna sér traust starf sem gerir manni kleyft að vinna frá 9 til 5 og verja kvöldum og helgum í faðmi fjölskyldunnar? Það er örugglega hægt að gera margt verra en að vera húðsjúkdómalæknir.

Ég ætla að fá 12" pizzu með pepperoni...
Um helgina fór ég út á fótboltavöll að fá mér smávegis hreyfingu. Fríða varð eftir heima með Bjarna og ætlaði að elda pizzu. Þegar ég hafði verið úti á velli í fáeinar mínútur heyrði ég væl í sírenum. Þegar ég leit við blasti þykkur reykjarmökkur við mér og sá ég ekki betur en að eitthvað hefði misfarist við pizzugerðina. Símtal heim róaði fljótt taugarnar og leiddi í ljós að eldurinn var hvorki í bökunarofinum okkar né annars staðar í húsinu.

Maður kemst við yfir þessu örlæti Dana.
Nálægt miðri 19. öld gerði heimtaði sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson að Danir greiddu háar bætur fyrir það arðrán sem þeir stunduðu á Íslandi fyrr á öldum. Þeir skelltu skollaeyrum við því en eitthvað hefur samviskan samt verið að naga þá. Ég fékk að minnsta kosti ekki betur séð þegar við vorum hjá foreldrum mínum á Íslandi í sumar. Þarna má lesa skýrum stöfum að loks hafi þeim Dönum tekist að búa til mannsæmandi sturtuhengi og til að friða samviskuna hafa þeir sent það sem greiðslu fyrir ótölulegan fjölda kúgilda sem runnu í kistu danska kóngsins svo hann gæti farið í stríð við Þýzkarana. Það er ekki svo lítil upphefð fyrir íslenskt alþýðuheimili að ráða yfir fyrsta almennilega sturtuhenginu sem framleitt er Danmörku.

Að lokum er svo áhugaverð frétt af vef Morgunblaðsins. Þarna má greinilega sjá að fjármálamenn á Íslandi láta sér ekki lengur duga að keppa í sumarbúðstaðabyggingum og laxveiði. Það verður spennandi að fylgjast með keppninni í hlutabréfavísitölu á næsta tímabili.

6 Comments:
Óska þér aftur til hamingju með afmælið í gær:O)
Luv ya!
By
Anonymous, at 7:33 AM
Þú ert nú meira nördið með allar þessar myndir, horfir fólk ekki furðulostið á þig þegar þú ert að taka myndir af merkingum í stórmörkuðunum ?
By
Anonymous, at 8:57 AM
Hey til hammó með ammó frá okkur, þú mátt nota ipodinn minn eins og þér sýnist, þangað til... ég veit ekki hvenær!
Brissó hressa og Orriba
By
Anonymous, at 6:13 PM
Hann tekur myndir á símann sinn...og jú fólk horfir furðu lostið á hann en hann er líklega orðinn vanur því. Ég þykist aldrei þekkja hann hehe
By
Anonymous, at 5:29 PM
Já, ég verð líklega líka að segja til hamingju með afmælið ágæti Special One, sem og afmælið frúarinnar. Lifi Tommy Lee!
Kibbi
By
Anonymous, at 4:02 PM
Heyrðu vinur þú verður að blogga oftar en 1 x í mánuði og muna að segja alltaf hvað ég er sæt ;O)
By
Anonymous, at 1:09 PM
Post a Comment
<< Home