Mannvísindatilraunir
Hr. Anton er farinn að labba og því hafa hlaupin á eftir honum aukist til muna. Þetta er tiltölulega nýbyrjað þannig að við höfum alveg við honum ennþá. Hins vegar fer honum hratt fram og þess vegna er tilvalið að dvelja næstu tvær vikur hjá tengdó. Þar er nóg af nýju dóti sem vekur forvitni og því ætti Anton að vera orðinn vel sprækur þegar dvölinni lýkur. Ég held að amma hans komist líka í gott form og það verður flott að sjá hana skutla sér eins og Bruce Grobbelaar á eftir vösum og styttum sem Anton gerir sig líklegan til að ráðast á. Þegar hann hefur verið innan um allt fíneríið hennar ömmu í tvær vikur finnst honum örugglega ekkert gaman að eltast við dótið hérna hjá okkur sem glansar ekki svona mikið og gerir ekki eins skemmtilegt hljóð þegar það dettur á gólfið. Hann dundar sér því væntanlega ánægður með dótið sitt og lætur annað í friði sem hann má ekki hafa. Ég hlakka til að sjá hvort ég hafi rétt fyrir mér með þetta. Niðurstöður ættu að liggja fyrir eftir mánuð eða svo.
Á morgun verður haldið með leigubíl út á flugvöll og síðan með nokkrum flugvélum til Keflavíkur. Við verðum á Íslandi í tvær vikur og síðan verður farið aftur heim. Hér ætti að verða orðið hlýtt og notalegt þá og kominn tími til að svipta kóverinu af grillinu og sækja sér smávegis nautasteik í kaupfélagið.

Amma Kata fær hjálp frá Björgvini og Steinari
við að fjarlægja dýrmætasta silfrið.
Á morgun verður haldið með leigubíl út á flugvöll og síðan með nokkrum flugvélum til Keflavíkur. Við verðum á Íslandi í tvær vikur og síðan verður farið aftur heim. Hér ætti að verða orðið hlýtt og notalegt þá og kominn tími til að svipta kóverinu af grillinu og sækja sér smávegis nautasteik í kaupfélagið.

Amma Kata fær hjálp frá Björgvini og Steinari
við að fjarlægja dýrmætasta silfrið.

1 Comments:
Ég bíð spennt eftir að Aron komist á skrið, hann liggur ennþá eins og ormur bara og hlykkjast til og frá, en hann heldur í vonina litla skinnið um að einn góðan veðurdag muni hann geta farið bæði aftur á bak og áfram. Taka coverið af grillinu segir þú.. Við erum búin að grilla af og til í allan vetur, síðast þegar við grilluðum var það nokkrum dögum fyrir jól í hádeginu, það var ekki laust við að maður sæi öfundarsvip á póstkallinum þegar hann er tróð himinháum reikningum innum bréfalúguna hjá okkur, hefði boðið kvikyndinu uppá pulsu ef hann hefði komið með ávísun handa mér.
By
Anonymous, at 4:47 AM
Post a Comment
<< Home