Nýtt ár og stöff
Aftur liðu jól og áramót í Amriku án mikilla átaka. Ég geri ráð fyrir að allt tiltækt púður sé notað í fjarlægum löndum til að sprengja upp vondukalla og því er lítið um ljósadýrð hér. Það er nú kannski ekki alveg satt því það er talsvert um jólaljós úr rafmagni. Það sem vantar líklega til að gera þessa klassísku jóla- og áramótastemningu er snjór og slabb.
Hins vegar er nógur snjór hjá mér núna því ég er staddur upp á reginöræfum. Þessa vikuna er ég að vinna í Denver í Colorado og hér er allt í snjó og slabbi. Hver kannast ekki við þessa skemmtilegu tilfinningu að vera í blautum skóm og láta bíla sem keyra fram hjá ausa yfir sig bleytu? Þetta er hreinlega eins og að vera staddur á Strandgötu í Hafnarfirði.
Þegar gengið er út úr lyftunni á sjöundu hæð á hótelinu blasir við skilti sem tilkynnir hátíðlega að hæð yfir sjávarmáli sé 5.430 fet. Það er langleiðin upp á Hvannadalshnúk og kuldinn hér er svipaður og ég ímynda mér að sé þar. Ég held að ég sé líka alveg við það að fá háfjallaveiki. Ég veit ekki hvernig hún lýsir sér en hún hlýtur að vera hræðileg.
Það gekk illa að finna hótel nálægt staðnum sem ég er að vinna á og ég komst að því í dag hvers vegna það er; hér er einhver svakalegasta beljuráðstefna sem fyrir finnst vestan Alpafjalla. Það er allt fullt af kábojum og fylgdarliði þeirra. Það má hafa mikla skemmtun af því að hlusta á þá því þeir tyggja allir skro og taka í vör og talandinn minnir á gúmmíteygju.
Ég á flug heim á föstudag en á fimmtudag er spáð fannfergi svo kannski fer ég hvergi fyrr en í vor. Ég læri þá bara að tyggja skro og redda mér einhvers staðar vinnu því ég hef mikla reynslu af því að moka flór.

2 Comments:
Ef að þú meiðir þig á fæti taktu þá skro (færð lánað hjá kábójunum) og tyggðu það, leggðu það síðan á sárið og hallaðu þér út af og dveldu þannig við í 3 daga, þá drepurðu allan sull og ígerð. Þetta lærði ég í Háskólanum í þjóðfræði og er vísindalega sannað.
Bryndís
By
Anonymous, at 8:30 PM
Ég er viss um að þetta drepur allt, þar með mann sjálfan og því þarf ekki að hafa meiri áhyggjur af Sulli og Ígerði.
By
GJ, at 6:14 PM
Post a Comment
<< Home