Ný húshjálp
Heimilinu hefur borist húshjálp frá Íslandi í formi hr. Ketils. Hann var sendur með hraðpósti frá Keflavík til Baltimore síðasta miðvikudag þar sem hann sló upp búðum og áði eina nótt. Katli til aðstoðar í Baltimore var Eric víkingur en hann vann sér frægð fyrir matseld sína á Ruby Tuesday í Skipholti áður en hann flutti aftur til Bandaríkjanna. Ketill hélt svo ferðinni áfram á fimmtudagsmorgni og lenti hér í besta ríki BNA um hádegisbil. Hann var afar hress og vel á sig kominn enda bárust fregnir af því að uppistaðan í fæði í Baltimore hefði pizza og kleinuhringir, allt samkvæmt óskum ferðalangs.
Ketill er þegar farinn að sinna daglegum verkefnum. Mest hefur verið að gera hjá honum við að hjálpa bróður sínum við að sigrast á alls kyns ófétum og vonduköllum sem eru nauðsyn í hverjum tölvuleik. Hann hefur einnig tekið að sér yngstabróðurgæslu og stendur sig býsna vel þar. Það er ekki að sjá að neinar skemmdir hafi orðið á Antoni í umsjá bróður síns. Bráðum kemur þó að aðalverkefninu sem er að klára að bera á grindverkið. Byrjað var á því verki í febrúar eða mars en hefur ekki tekist að ljúka sökum votviðris. (Ef mér skjöplast ekki er votviðri íslensk þýðing á enska orðinu lazyness.)
Nú er ekki lengur til setunar boðið því húsfrúin er að rífa alla frá tölvum og út í göngutúr svo að fjölskyldan verði falleg og í góðu formi þegar hún kemur til Íslands í lok júní að magna stuðið.

Þessir fituhlunkar þurfa að legga af áður en þeir geta látið sjá sig á Íslandi.

1 Comments:
Þetta er nú ein aðal ástæðan fyrir því að maður er að koma með þessa erfingja yfir höfuð, húshjálp og skutl í ellinni. Kveðjur til allra. x x
By
Anonymous, at 12:35 PM
Post a Comment
<< Home