Amma 1 - 0 Anton
Þá eru allir komnir heim fyrir nokkrum dögum síðan. Þetta var strembin ferð, mikil vinna og lítill svefn, og ágætt að vera kominn aftur í sveitina. Hins vegar var hvíldin ekki löng því strax á sunnudag fór ég til Atlanta. Sem betur fer var sú ferð ekki nema einn dagur en það tekur samt á að sitja í flugvél í fjóra tíma og bíl í aðra fjóra á einum sólarhring.
Amma Kata átti svar við öllum leikfléttum Antons og ég varð ekki var við að neitt verðmætt félli í gólfið með brauki og bramli. Anton gerði sitt besta þó og beitti nýju bragði og fór að ganga. Hann var eitthvað kominn af stað áður en við fórum til Íslands en dótið hennar ömmu varð honum greinilega mikill hvati.
Nýjasta trixið hans er hlaupabóla, að því að við best fáum séð. Hann verður settur fyrir framan dómnefnd heimilisins á eftir og þar verður ákveðið hvort hann fær að fara í leikskóla eða hvort hann verður heima í dag, móður sinni til yndis og ánægju.

1 Comments:
Batakveðjur til Tona, illu er bestu aflokið (ekki Júlíönu samt)
By
Anonymous, at 4:50 AM
Post a Comment
<< Home