Fréttir frá Gulrótargötu

Sunday, April 01, 2007

Ísinn brotinn

Ég held að ég hafi farið á þorrablót í fyrsta skipti í gær. Reyndar man ég eftir einu öðru sem var haldið í íþróttahúsinu á Álftanesi en þá var ég að vinna sem barþjónn og það telst ekki með. Nokkrar duglegar konur tóku að sér að skipuleggja þorrablótið og útveguðu hangiket, sal og gesti. Gestir lögðu flestir í púkkið, t.d. voru þarna tveir kassar af Prins Póló og við Fríða létum af hendi rakna flösku af íslensku brennivíni. Þetta var eiginlega bara eins og að vera í félagsheimili á Bíldudal því flestir töluðu Íslensku, margir voru fullir, nokkrir sungu og salurinn var uppi á lofti yfir verslun sem selur alls konar bráðnauðsynlega hluti frá Skandinavíu (nei, ekki IKEA).

Við hittum konu sem heitir Nancy og líka Ingibjörg. Hún ólst upp á Norðurstígnum í Hafnarfirði en kom upphaflega frá Vestmannaeyjum þannig að hún hlýtur bara að vera skyld Fríðu. Eins þurfum við að kanna hvort hr. Björgvin muni eftir henni þótt hún hafi flutt til Bandaríkjanna fyrir 45 árum.

Það hefði verið hægt að setja upp íþróttamót því þarna voru Oddur Sigurðsson, Óskar Jakobsson, Einar Karl Hjartarson og David Grissom (og auðvitað óuppgötvaður fótboltasnillingur). Þeir sem ekki þekkja þessa heiðursmenn hafa ekki fylgst nógu vel með hlaupum, kúluvarpi, hástökki og körfubolta síðustu 25 árin.

Það var dálítið af annarar og þriðju kynslóðar Íslendingum þarna og fæstir kunnu nokkuð í Íslensku nema einhvern dónaskap sem við höfum ekki eftir hér. Stefán Jónsson er þó undantekning. Mamma hans, hin frábæra Kristjana, flutti til Kaliforníu fyrir rúmum 50 árum og hefur greinilega passað upp á að strákur lærði móðurmálið. Tja, allt nema orðið "palladómur", sem vafðist eitthvað fyrir þeim þegar við kíktum í heimsókn um daginn.

Það var ákveðið í gær að halda almennilega upp á 17. júní í sumar. Miðað við tímasetninguna á þorrablótinu verður væntanlega haldið upp á þjóðhátíðardaginn um verslunarmannahelgina en það verður ekki verra fyrir það.

Í dag er 1. apríl og sumar kom formlega með fyrsta sólbrunanum. Það er minni háttar roði á eyrum eftir margra klukkutíma útivist við að mála grindverk og reyta illgresi. Nú lítur allt betur út og er orðið fallegra á litinn: Garður, grindverk og eyru.

Fyrir þá sem ekki vilja bíða eftir 24. apríl: Gleðilegt sumar!

2 Comments:

  • Gleðilegt sumar, hér er líka sumar og sól, vorum í grillveislu í dag, en ég lét hárið yfir eyrun svo ég slapp við bruna, spurning með aumingja Andy og Aron sem báðir eru nauðasköllóttir. En ég varla trúi því að Fríða hafi tímt að hafa látið Brennivínið af hendi, ég held innst inni að hún hafi nælt sér í trekkt, hellt brennivíninu í tóma flösku og fyllt svo hina af vatni. Túrilú og blæ blæ.

    By Anonymous Anonymous, at 12:17 PM  

  • Gle'sumar!
    Pabbi er svo mikið sósíal-tröll að ég held að hann muni pottþétt eftir þessari konu, ekki að spyrja af því, ætli hann hafi ekki daðrað við hana á sínum tíma? doj doj doj.

    Bryndis

    By Anonymous Anonymous, at 5:11 AM  

Post a Comment

<< Home