Fréttir frá Gulrótargötu

Saturday, May 05, 2007

Feck uf, yu stubed bastrd!

Ég vaknaði klukkan fimm í morgun til að fara að horfa á fótbolta. Félagi Colin er harður stuðningsmaður Glasgow Rangers og í dag var leikur gegn vondu köllunum í Glasgow Celtic. Svona lagað er ekki sýnt hvar sem er og því þurftum við að fara á ofurbúllununa White Rock í Dallas. White Rock er ca. 40 mílur í burtu frá okkur og því þurfti að fara svona snemma af stað þar sem leikurinn hófst klukkan 6:30.

Ég veit ekki hvað fór fram á White Rock í gærkvöldi en þegar ég fann lyktina þegar við gengum inn datt mér í hug eftirfarandi: Fjós, gubb, súrkál og gömul mjólk. Maður lætur samt ekki slíkt á sig fá þegar maður ætlar að horfa á fótbolta heldur heimtar bolla af skelfilega slæmu kaffi og slurkar því í sig orðalaust. Þarna voru um 20 stuðningsmenn Rangers til að fylgjast með sínum mönnum. Til að byrja með vorum við fleiri saman í kaffinu en svo fækkaði í kaffihópnum þar til ég var einn eftir. Hinir færðu sig í bjór og blóðugar Maríur og annað slíkt sem þykir við hæfi snemma að morgni. Auðvitað drekka menn ekki á fastandi maga heldur fá sér egg og beikon og burritos með sem fyllingu.

Það er afskaplega menningarlegt að taka þátt í svona atburði og ekki síst fræðandi. Maður lærir til dæmis fullt í ensku og hvernig á að bera sig að við að garga á sjónvarpið. Einnig fær maður að vita heilmikið um mæður leikmanna Celtic, hvaðan þeir koma og hvert þeir geta farið. Ég mæli með þessu við hvern sem er.

Ég lét þess alveg ógetið að ég hef haft taugar til Celtic alveg síðan Jóhannes "Búbbi" Eðvaldsson spilaði með þeim á áttunda áratugnum. Maður á ekki að trana skoðunum sínum fram þegar aðrir eru að kenna manni.

Rangers unnu 2 - 0.

2 Comments:

  • Noh hvah, ekkert Haggis ?

    By Anonymous Anonymous, at 2:25 AM  

  • Well said.

    By Anonymous Anonymous, at 4:12 PM  

Post a Comment

<< Home