Fréttir frá Gulrótargötu

Saturday, January 07, 2006

Að loknum jólum

Þá eru jólin tæknilega búin og það var víst bara venjulegur dagur í dag. Búið er að taka niður allt jólaskraut á heimilinu og koma því fyrir í kössum sem sumir hverjir bíða eftir því að fara upp á loft. Í hornið þar sem jólatréð stóð er nú komin planta sem ég kann ekki alveg að nefna en e.t.v. er þetta jólastjarna. Ekki nema 351 dagur eftir til jóla.

Við fengum annan gest á nýársdag í staðinn fyrir alla þá sem voru hér um jólin. Þeir fóru allir í einu þannig að það var ágætt að Pétur flaug alla leið frá Finnlandi til að minnka fráhvarfseinkennin. Hann hefur verið stærstan part vikunnar á námskeiði ásamt heimilisföðurnum. Á morgun mun hann nálgast Finnland og Marikku sína örlítið því hann flýgur héðan til Washington D.C. þar sem hann verður að vinna í viku áður en hann fær að fara alla leið heim.

Á fimmtudag fórum við Fríða í sónar á spítalanum. Allar konurnar sem vinna þar keppast við að býsnast yfir því hvað barnið er stórt og vilja fá nákvæma skýrslu um mataræði móðurinnar og hvort þetta sé eitthvað í ættinni eða bara ofvirk víkingagen. Þrátt fyrir mikla þreytu virðist ástand móðurinnar gott og engin ástæða til að hafa áhyggjur ef hún er dugleg við að hvíla sig. Í næstu viku verður farið aftur á spítala og þá verður ákveðið hversu lengi frúin verður látin ganga með barnið. Þetta fer því að bresta á fljótlega og því best að drífa sig að kaupa rúm og bleyjur og eitthvað fleira sem þarf fyrir svona lítið fólk.

Hér er víst hefð eða regla að börn fái nafn við fæðingu eða a.m.k. áður en þeim er hleypt heim til sín af spítalanum þ.a. það er eins gott að það verði búið að ákveða hvað það á að heita áður en langt um líður. Bjarni hefur komið með nokkrar athyglisverðar hugmyndir og í gær stakk hann upp á nafninu Tréhús. Ekki er vitað hvaðan það er komið en nefndin tók ekki vel í það.

Hér hvín í öllu sökum vinds og því best að forða sér undir sæng og vona að lognið verði meira að morgni.

4 Comments:

  • Kannski halda þær bara að barnið sé eitthvað risastórt því Fríða er venjuleg en ekki 200 kg eins og hinar Texaskonurnar, annars er nafnið Tréhús ekkert verra en mörg önnur.

    By Anonymous Anonymous, at 8:59 AM  

  • Nokkuð gott hjá frænda mínum, en er nafnið Tréhús strákanafn eða stelpunafn?

    By Anonymous Anonymous, at 7:35 AM  

  • Sorry, en ég er Kolla, ég gleymdi að nefna það áðan.

    By Anonymous Anonymous, at 7:36 AM  

  • Já Tréhús er ágætisnafn bara..kannski maður spái betur í því og reyni að fá leyfi hjá mannanafnanefnd. En ætli það virki ekki bara á bæði kynin? :) Kolla takk fyrir myndirnar af ykkur Ella, lítið stórvel út...borgar sig að búa í sólríku landi sko;)

    By Anonymous Anonymous, at 8:16 AM  

Post a Comment

<< Home