Fréttir frá Gulrótargötu

Saturday, March 18, 2006

Nú er úti veður vott . . .

Hér er blautt. Það er líka stórhættulegt að fara út því ekki er nóg með það að hér sé úrhellisrigning heldur eru hér þrumur og eldingar. Hávaðinn og glæringarnar eru slíkum ósköpum að Íslendingar gætu verið stoltir af því að ná slíkum effektum með öllum flugeldunum sínum á gamlárskvöld. Þetta hefur staðið yfir meira og minna síðan í gærkvöldi en þó styttir upp inn á milli. Þetta á víst að vera svona fram yfir helgi. Vonandi dregur aðeins úr veðrinu seinni partinn í dag því þá ætlum við að fara í partý. Steve þjálfari, sá sem þjálfar Smashers, og konan hans buðu okkur til þeirra í kvöld. Dagskráin lítur mjög vel út því þau ætla að elda, búið er að kaupa bjórkút og fótbolti verður í sjónvarpinu. Það eru þó takmörk fyrir því hvað börnin fá að vaka lengi og drekka mikið því drengirnir eiga að spila leik á morgun klukkan þrjú. Það var mjög gott að fá Ketil hingað og ekki síst til þess að hjálpa okkur Bjarna við fótboltaæfingarnar. Við Bjarni erum hvor á sínum endanum á ferlinum og fínt að fá einhvern bæði kann til verka og hefur eitthvað úthald.


Þrumuskot í uppsiglingu.


Skrambinn! Stöngin út.


Úff! Vonandi sjá þeir ekki hvað ég er þreyttur.

Það verður tilbreyting fyrir okkur að vera gestir í stað þess að hafa gesti. Hér hefur verið gestkvæmt en síðustu gestirnir fóru á miðvikudaginn. Þá keyrðum við Völu og Ketil á flugvöllinn og þau flugu áleiðis til Íslands. Það var mjög gaman að hitta allt þetta fólk, bæði það sem gisti hjá okkur og þá sem sóttu ráðstefnuna í síðustu viku sem var meginorsök alls gestagangsins. Ferðin í dýragarðinn síðasta laugardag var vel heppnuð og ekki var verri ferðin í griparéttirnar í Fort Worth um kvöldið. Hitinn var svo mikill og sólin svo sterk að talið var best að maka allan hópinn sólarvörn af sterkustu gerð svo að íslensk mjallarhúðin brynni ekki til ösku. Bjór og gosdrykkir voru svo óspart notaðir til kælingar.


Fríða og Íris tóku sig vel út í Fort Worth Zoo.


Kæling og hvíld eftir heitan dag.

Við erum þessa dagana að velta því fyrir okkur hvenær best er að fara í heimsókn til Íslands. Við þurfum að taka ákvörðun bráðlega og líklega verður farið um miðjan júní eða í lok júlí. Það óneitanlega freistandi að komast burt frá Texas meðan mesti hitinn er en hann byrjar í júlí en þá er auðvitað lengra þar til allir aðdáendur okkar á Íslandi fá að sjá okkur. Ákvörðunin verður tilkynnt við hátíðlega athöfn síðar.

3 Comments:

  • Skárra að hafa þrumur og eldingar heldur en þennan nístings kulda sem meiðir í manni öll bein. En ertu byrjaður að drekka bjór Guðmundur ? Það er nú heljarinnar stökk úr maltinu.

    By Anonymous Anonymous, at 9:55 AM  

  • Já takk fyrir ósköp erum við Íris tignarlegar og bleikar þarna á myndini ;)

    By Anonymous Anonymous, at 10:18 AM  

  • Gott að heyra að þetta virðist ganga vel hjá ykkur í henni Ameríkunni. Vona líka að Fritz og Anton Karl séu að gera mót. Héðan úr Köben er þokkalegt að frétta, veturinn hefur reyndar verið langur og kaldur og marsmánuður sá kaldasti í manni minnum. Í fyrradag byrjaði mælirinn loksins að skríða upp fyrir þetta 0-3 gráður. Núna er næstum 10 stiga hiti. Þórey Anna stækkar og dafnar, er kát á vöggustofunni og fer einu sinni í viku í barnasöng - og leikfimi. Ég fer einmitt með hana hérna á eftir. Þórhildur er að vinna í sínu lokaverkefni og verður að því þangað til við flytjum heim til Íslands, sem verður kannski í október. Ritgerðin mín var prentuð út í endanlegu formi í gær en vegna anna verður henni ekki skilað fyrr en á föstudag. Eftir skil þarf ég síðan að verja ritgerðina.
    Er annars að vinna á sambýlinu fyrir þroskahefta, verð þar allavega fram yfir vörn. Síðan er bara að sjá hvað gerist.
    Vona að annars að allt sé í sómanum. Fyrir alla muni farið þið varlega í kræsingarnar þarna úti, sá þátt um daginn um USA og offitu og velti því fyrir mér að hringja út Landhelgisgæsluna til að sækja ykkur. Var talsvert svakalegt. Held að Al-Quida geti alveg verið rólegir, ættu bara að flytja inn enn svakalegri sósur inn í USA, það yrði miklu effektívara.
    Kveðja
    Esga (það heiti ég hérna!)

    By Anonymous Anonymous, at 1:01 AM  

Post a Comment

<< Home