Fréttir frá Gulrótargötu

Sunday, January 15, 2006

Blessað barnalán

Í dag er 15. janúar og þann dag á hr. Bjarni afmæli. Í dag tókst honum að verða fimm ára og er það nokkuð vel af sér vikið hjá honum. Hann hefur talað um þetta í nokkra daga og hefur verið nokkuð spenntur, eins og gefur að skilja. Ekki man ég eftir fimm ára afmælinu mínu en eflaust hef ég verið engu minna spenntur að fá frændur og frænkur í heimsókn í Breiðholtið. Bjarni gekk stoltur inn í herbergi foreldra sinna í morgun og hélt uppi fimm fingrum til þess að þeir vissu örugglega að hann hefði náð þessum aldri og ekki datt okkur í hug að þræta við hann. Eiginlega hefur staðið yfir þriggja manna veisla í allan dag og lít ég á það sem sönnun þess að fjör í afmælum sé margfeldi fjölda gesta og tíma. Fyrstu klukkutímar morgunsins fóru í að opna gjafir og borða morgunmat. Öllum gjöfum sem höfðu borist og verið keyptar hafði verið staflað upp í einu horni í hjónaherbergi og stóð skæðadrífa af umbúðapappír þaðan í fáeinar mínútur. Fyrsta gjöf sem fór í notkun var DVD-diskur með ævintýrum múmínálfanna og skemmti barnið sér næstum jafnmikið og pabbinn yfir þeim.

Eftir morgunmat var lagt af stað í leiðangur til að leita að meiri mat. Örlítið ætilegt fannst í kvikmyndahúsinu sem við fórum í til þess að sjá skrípó. Fyrsta skrípó sem við sáum var að bíómiðar fyrir þrjá kostuðu $3 en vatn og popp kostaði $14. Við sáum mikla snilldarmynd um ævintýri Wallace og Gromit og eltingarleik þeirra við var-kanínuna ógurlegu. Drengurinn skemmti sér ekki eins mikið yfir myndinni og pabbinn en það var bara vegna þess að hann varð pínulítið hræddur við þrumur og eldingar sem notaðar voru í myndinni til að auka á dramað sem var dálítið fyndið.

Á næsta stað skemmti Bjarni sér svo loks meira en pabbinn. Við fórum á Chuck E. Cheese's sem er eiginlega spilavíti fyrir börn. Þar geta þreyttir foreldrar borðað barnamat á borð við pizzu með osti eða pepperoni og hvílt sig milli þess sem þeir hlaupa með börnum í ótal leiktæki og spilakassa. Þarna er sniðugt miðasystem í gangi. Gegn því að dæla peningum í tækin og spila örlítið spýta vélarnar út úr sér miðum sem síðan er hægt að nota til að kaupa dót á staðnum. Trixið er hins vegar það að hver leikur kostar um 25 sent en hver miði er u.þ.b. eins sents virði. Okkur tókst að herja um 120 miða út úr vélunum en fyrir það má kaupa spjald með 5 límmiðum eða eitthvað álíka. Hins vegar er það ekki aðalatriðið heldur það að þarna má skemmta sér hvort sem maður er fimm ára eða eitthvað dálítið meira.

Eftir fjörið hjá Chucky var haldið heim á leið. Ekki var beinasta leiðin farin og auðvitað endaði það með því að einhverjir þurftu skyndilega að komast á baðherbergi. Það eina sem bílstjóranum datt í hug á þjóðvegi 26 var að bruna á næsta Krispy Kreme-stað sem er frægur fyrir að selja kleinuhringi sem innihalda nægar kaloríur til að halda öllum í þorpi á borð við Hofsós á lífi í viku eða svo. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fólk haldi úti salernisaðstöðu fyrir hvern sem er án þess að fá eitthvað fyrir það og því kvöddum við staðinn með 6 kleinuhringi í kassa. Orkan sú arna mun nýtast vel í fótboltanum á eftir.

Fyrr í vikunni var annars konar hátíð haldin. Hinir ágætu vinnufélagar hjá Hotsos efndu til barnasturtu (baby shower) fyrir hina verðandi foreldra. Okkar hlutverk fólst í því að sitja og brosa fallega milli þess sem við borðuðum mat, opnuðum pakka og borðuðum köku. Þetta var mjög gaman og fengum við alls kyns dót sem kemur sér vel þegar lítil börn eru á heimilinu. Barnið getur nú farið í bað, þarf ekki að vera berrassað og getur látið rafknúna rólu svæfa sig meðan snuð og pelar liggja allt um kring.
Það eina sem vantar núna er barnið sjálft. Það sér samt fyrir endann á þessari óléttu því ef það lætur sig ekki fyrir 24. janúar verður brunað þann dag á spítalann og því náð út með brögðum. Verkirnir í mömmunni er samt einhvern veginn þannig að það laumast að manni sá grunur að þetta verði ekki eins skipulagt og halda mætti. Ætli það sé ekki líklegra að allir verði vaktir með hljóðum um miðja nótt einhvern tíma í næstu viku. Hvað svo sem gerist mun það ekki fara framhjá neinum.

4 Comments:

  • Takk fyrir það:) Hann er voða stoltur af aldrinum.

    By Anonymous Anonymous, at 12:12 PM  

  • Ásgeir bróðir hér, vildi óska Bjarna Þór til hamingju með 5 ára afmælið á sunnudaginn. Vona að afmælisdagurinn hafi verið ánægjulegur í Texas. Hlakka til að sjá hann næst, hann hefur greinilega stækkað mikið síðan ég sá hann seinast.

    Vona sömuleiðis að jólin hafi verið skemmtileg hjá ykkur, og að það hafi verið gaman að fá Bryndísi og Orra í heimsókn.

    Vona sömuleiðis að óléttan gangi vel, er ekki að fara að styttast í þetta?

    Kveðja frá Köben
    Ásgeir

    p.s. Þórhildur og Þórey Anna biðja að heilsa.

    By Anonymous Anonymous, at 11:59 AM  

  • Pældu ef þið væruð á Íslandi þá hefðuð þið annaðhvort getað haldið veislu, farið í Hveragerði og keypt ís eða frosið í hel í húsdýragarðinum, ÁFRAM ÍSLAND.

    By Anonymous Anonymous, at 2:36 PM  

  • Stór ertu orðinn Bjarni Þór. Hlökkum til að hitta ykkur.
    Kolla frænka, Ásgeir og Katrín.

    By Anonymous Anonymous, at 7:10 AM  

Post a Comment

<< Home