Fréttir frá Gulrótargötu

Saturday, January 21, 2006

Smávegis útúrdúr

Þetta eru ekki beint fréttir af þremenningunum í Texas heldur dálítil myndasýning af því sem fyrir augu hefur borið og e.t.v. þótt merkilegt eða örlítið einkennilegt. Myndgæði eru ekki upp á marga fiska enda allar myndirnar teknar með Nokia 6230 farsíma. Þær ættu þó að duga til að koma efninu til skila. Hefst þá sýningin.



Þetta áhugaverða skilti er í Chatham í Kanada. Chatham er lítill bær og verður seint talinn nafli alheimsins. Ég komst aldrei að því hvað þetta skilti þýðir en mér dettur í hug að það hafi verið sett upp til að hleypa dálítilli spennu í mannlífið í bænum. Ég man að þegar maður lenti á reitum með spurningamerki í Matador í gamla daga þurfti að draga spil og gat maður þá unnið kr. 500 fyrir að hafa náð öðru sæti í fegurðarsamkeppni, þurft að greiða fleiri þúsund í fasteignagjöld fyrir hvert hótel og margt annað skemmtilegt. Ég tók áhættuna og fylgdi örinni en sá aldrei neitt sem kom mér sérstaklega á óvart nema e.t.v. skólann sem kenndi írska þjóðdansa.



Snjór í Texas. Ég rétt náði þessari mynd áður en sólin bræddi snjóinn svo hratt að hann gufaði upp með háu hvissi. Þessi snjókorn, ásamt nokkrum öðrum, urðu þess valdandi að ekki þótti þorandi út úr húsi, skólum var lokað og engir nema allra hörðustu töffarar lögðu í að keyra. Daginn áður en þessi mynd var tekin var ég staddur í höfuðborginni Vosuton og allan þann dag og allt kvöldið voru æsifréttir í sjónvarpinu um gríðarlegan snjóstorm á höfuðborgarsvæðinu. Miðað við hamaganginn í fréttafólkinu óttaðist ég að komast ekki heim fyrr en um mitt sumar en morguninn eftir var ekki mikið meira að sjá á götum úti en venjulegt slabb. Allt fór því vel og ég komst heim til þess að taka mynd af snjó í Texas.



Aðgengi fyrir fatlaða er með mestu ágætum hér í kringum okkur. Það hjálpar auðvitað að landið er flatt eins og pönnukaka en þar fyrir utan eru nær allar byggingar með breiðum lyftum og nóg er af sérmerktum bílastæðum. Þessi ágæti hraðbanki, sem þetta skilti prýðir, býður upp á aðstoð fyrir sjóndapra og talar ef þess er óskað. Ef rýnt er í myndina má jafnvel sjá blindraletur. Það sem mér fannst einkennilegt er að skiltið er á "drive-thru" hraðbanka fyrir akandi viðskiptavini...



Vinur minn Sigfús sagði mér eitt sinn frá því þegar hann var staddur á benzínstöð í Þýzkalandi. Á benzínstöðinni voru tvennar dyr, aðrar til að ganga inn um og hinar til að ganga út um. Þegar Sigfús var búinn að kaupa sér samloku og kók og ætlaði að ganga út um innganginn var öskrað hátt á eftir honum: "EINGANG! NICHT AUSGANG!" (Lausleg þýðing: "Inngangur! Ekki útgangur!") Ég hefði hlegið að Sigfúsi og minnt hann á þessa sögu ef hann hefði ætlað að ganga inn um dyrnar til vinstri á myndinni en dyrnar til hægri virðast vera aðeins flóknari. (Lauslegt þýðing: "Gangið ekki inn. Ekki útgangur.)

Gangið hægt um gleðinnar dyr á þorranum (og megi þær vera rétt merktar.)

2 Comments:

  • Það er gott að byrja sunnudagsmorgna með te, ristuðu brauði og hlátri.. þetta er alger snilld, verð að sýna Andy þetta þegar hann er búinn að vaska upp :D

    By Anonymous Anonymous, at 2:18 AM  

  • Ég er alveg ruglaður.

    By Anonymous Anonymous, at 9:39 AM  

Post a Comment

<< Home