Boy Kristjánsdóttir
Í gær klukkan 14.25 fæddist á Baylor Medical Center í Grapevine drengur sem vóg rétt rúmlega fjögur kíló. Honum heilsast sæmilega en hann fékk vökva í lungu og þarf að dvelja á gjörgæslu í nokkra daga meðan vökvanum er náð út. Hann er tengdur út og suður við slöngur og víra en öll próf hafa komið vel út og hann ekki talinn í neinni lífshættu. Hann fær næringu í æð þar til mamman getur farið að gefa honum og einnig fær hann auka súrefni og notar til þess afar flottan geimfarahjálm. Hjúkrunarfólkið telur að best sé að hafa hann undir eftirliti meðan hann er að komast yfir erfiðasta hjallann.
Mamman er að öll að braggast eftir átakamikinn dag og er að verða rólfær. Pabbinn er sæmilegur og hleypur á milli sjúklinga milli þess sem hann reynir að sinna Bjarnanum og sofa pínulítið.
Vesalings Ameríkanarnir eru með höfuðverk yfir þessum furðulegu nafnagiftum sem tíðkast á Íslandi. Þeir gera auðvitað ráð fyrir að öll fjölskyldan hafi sama eftirnafn og finnst við dularfull þegar við útskýrum íslensk föðurnöfn. Eins finnst þeim undarlegt að við höfum ekki enn gefið drengnum nafn, a.m.k. ekki opinberlega, en það verður gert um leið og nefndin kemst að niðurstöðu. Þess vegna heitir hann Boy Kristjánsdóttir á öllum plöggum sem til eru um hann. Eitt er víst að hann fær ekki að fara af spítalanum fyrr en hann fær nafn og það mun tryggja að hann þarf ekki að bíða lengi (og ekki þið heldur).

5 Comments:
Til hamingju með Boy! Við biðjum öll að heilsa. Mamma, Kiddi, Helga og rest.
Gangi ykkur vel!
By
Anonymous, at 12:37 PM
Haha.. spurning um að halda sig bara við Boy nafnið og bæta svo við George, kannski mun hann stofna Culture club 2 í framtíðinni. En innilega til hamingju með snúðinn, 4 kg er nú bara ósköp eðlilegt, svona miðað við íslensk börn, voru ljósmæðurnar ekki komnar með andarteppu og allt saman yfir hvað barnið væri orðið stórt,.. Gummi segðu þeim að systir þín hafi verið 18 merkur, sem er yfir 5 kg ef ég kann að reikna rétt.
By
Anonymous, at 4:04 AM
18 merkur er 4,5 kíló en systir mín er samt f... :-)
By
Anonymous, at 2:25 PM
Það vantaði nokkra punkta þarna fyrir aftan Effið, ætlaðir þú ekki annars að segja "systir mín er samt falleg"
By
Anonymous, at 12:05 PM
Jú Rakel hann er að meina falleg:) við vitum að við erum mjög fallegar og engin þarf að segja okkur neitt annað:) (sérstaklega ekki svona gamlir karlar með grátt í vöngum).
By
Anonymous, at 8:14 AM
Post a Comment
<< Home