Anton Karl var það, heillin
Leyndarmálið er ekki lengur leyndarmál. Pilturinn ungi hefur fengið nafnið Anton Karl. Fyrra nafnið er mestmegnis út í loftið en hefur þá ágætu hliðarverkan samkvæmt okkar heimildum að þýða ómetanlegur eða eitthvað í þá áttina. Það er vel við hæfi. Seinna nafnið er meira úr ættum vorum en heimildir geta þess að það nafn þýði kraftmikill eða mannalegur. Það á vel við loðið bakið og þykka armana.

Drengurinn hefur það ágætt miðað við aðstæður. Hann er auðvitað ekki heima hjá fjölskyldu sinni til að fá mjólk hjá móður og til að láta stóran bróður pota í sig en hann er í góðum höndum hjá hjúkrunarfólkinu. Fyrstu tvo dagana var hann látinn vera undir súrefnishjálmi meðan hann reyndi að mynda surfactant sem er svo nauðsynlegt fyrir lungun. Það tók hins vegar of mikið á fyrir hann þ.a. á þriðja degi var hann settur í öndunarvél sem létti honum erfiðið. Þetta var ekki ósvipað því að vera lafmóður eftir hlaup og reyna svo í tvo daga að ná andanum. Það þótti ekki mikið stuð og því var honum hjálpað. Hann fékk einnig gervi-surfactant til frekari aðstoðar meðan hann myndaði sitt eigið. Fyrir þá sem ekki hafa verið umkringdir hjúkrunarfólki dag og nótt skal þess getið að þetta surfactant hjálpar til við að opna lungablöðrurnar og mynda nýfædd börn venjulega æviskammt við fæðingu.
Fríða fór heim af spítalanum á fimmtudag og hefur náð sér vel síðan þá. Það tekur auðvitað á að fara heim og skilja barnið eftir en hún er dugleg að framleiða mjólk með aðstoð dælu. Mjólkin er fryst og geymd og síðan tekin með þegar við förum í heimsókn til Antons á spítalann.
Við fórum í heimsókn áðan og þá var hann laus við öndunarvélina og andar nú sjálfur. Hann fær örlítið súrefni í nasir og hann er kominn í ljósameðferð til að vinna á gulunni sem hann náði sér í en annars er hann allur að braggast. Hann fékk pela í fyrsta skipti og tók hann mjög vel. Hann var fljótur að klára og það var ánægð móðir sem kenndi honum dónaskap og lét barnið ropa. Fríða fékk að halda á honum í tuttugu mínútur eða svo og var það í fyrsta skipti síðan hún fékk hann í fangið í eina mínútu við fæðinguna. Strákurinn grét dálítið þegar við mættum á svæðið og var okkur sagt að það væri af hungri. Gráturinn var svipaður og hjá manni sem hefur reykt 3 pakka á dag af filterslausum Camel í mörg ár en það stafaði af því að raddböndin voru aum eftir slönguna úr öndunarvélinni. Það jafnar sig með tímanum og fer hann þá væntanlega að láta vel í sér heyra.

Mamma ánægð með ropið.

Mamma með strákinn sinn.
Þetta er allt á réttri leið og gert er ráð fyrir að drengurinn fái að fara heim á þriðjudag eða miðvikudag.
Og góðu fréttirnar eru ekki búnar enn: Robbie Fowler er snúinn aftur til Liverpool og fögnum við því milli heimsókna til Antons.

7 Comments:
Til hamingju með nafnið það er rosalega fallegt, og það sama má segja um nafneigandann, ekkert smá mikið krútt, hlakka til að sjá fleiri myndir af honum, og gott að hann sé að braggast og kemst von bráðar heim til sín.
By
Anonymous, at 10:37 AM
Já takk fyrir það. Hann er ósköp mikið krútt. Gaf honum brjóst í dag og geri það aftur á eftir og núna vill ég varla sleppa honum og fara heim án hans. Hlakka mikið til þegar hann kemur heim til okkar á þriðjudag (samkvæmt lækni í dag):)
By
Anonymous, at 4:19 PM
Hæ Fríða og stóra fjölskylda. Til hamingju með nafnið, Anton Karl Guðmundsson hljómar fallega og hraustlega. Vona að hann sé allur að koma til eftir slöngufargið, hann tekur sig allavegna vel út á þessum myndum. Myndarstrákur, og líkist Bjarna mikið á myndinni þar sem hann situr uppi með hjálp móður sinnar. Hlakka til að heyra meira, ekki síst þegar hann fær leyfi til að koma heim til sín. Ætla að senda pakka til ykkar í dag.
Og það er rétt hjá Gumma að þetta með Fowler gerði seinustu viku alveg ekstra ánægjulega. En til hamingju aftur með þetta allt saman, við hugsum hlýlega til ykkar héðan frá annars kaldri og vetrarlegri Köben.
Kveðja Ásgeir bróðir, Þórhildur og Þórey Anna frænka.
P.s. sjáumst vonandi öll á árinu 2006, við stefnum á að flytja heim í byrjun október. Kannski komum við samt eitthvað heim í sumar.
By
Anonymous, at 1:22 AM
Kærar þakkir Ásgeir og family. Hann er kominn heim og er duglegur að drekka. Mér finnst hann bara alveg eins og Bjarni þegar Bjarni var svona lítill.
Já það væri gaman að hitta á ykkur á Íslandi í sumar. En sjáum hvernig það fer;) verðum allavega í sambandi.
By
Anonymous, at 6:20 PM
Gott að heyra að Anton Karl sé kominn heim. Og já, mér fannst hann ansi líkur Bjarna þarna á einni myndinni. Eggert vinur minn og Dóra konan hans eignuðust líka strák nr. 2 núna í nóvember síðastliðnum, og þar líkist sá stutti þeim eldri það mikið, að hann er eins og míniútgáfa af stóra bróður sínum. Frekar fyndið. Biðjum aftur að heilsa, vildi bara athuga hvort Anton Karl væri kominn heim. Það er pakki á leiðinni.
Kveðja frá Köben frá okkur öllum
By
Anonymous, at 2:06 AM
Hæ og til hamingju með nafnið! Gott að hann er kominn heim (og Fowler) í höllina og allt er á réttri leið. Kolla og fam. lendir á Fróni í dag. Spennandi að sjá þau. Kveðja, Kiddi og Helga
By
Anonymous, at 4:06 AM
Vá hvað ég var ljótur
- Anton Karl Guðmundsson
By
Anonymous, at 2:17 AM
Post a Comment
<< Home