Fréttir frá Gulrótargötu

Friday, March 10, 2006

Allt rólegt á vesturvígstöðvunum

Það er e.t.v. ekki rétt að það sé rólegt hér þótt fréttir hafi ekki verið ritaðar í nokkurn tíma. Hér hefur reyndar heilmikið gerst og ef minnið hefur ekki alveg gefið sig rifjast kannski eitthvað upp. Sem betur fer hefur betri helmingurinn einnig tekið að sér pistlaritun og léttir það á pressunni.

Fyrst ber auðvitað að nefna heimsókn hr. Ketils til okkar á Gulrótargötuna. Hann mætti síðasta laugardag í fylgd Völu og Torfa frá Íslandsbanka sem voru að mæta á ráðstefnu. Upphaflegt plan var að mæta hingað á föstudag en vegna seinagangs í einhverjum dragslóðum í Keflavík lagði vélin of seint af stað til Boston. Þar af leiðandi misstu þau af tengifluginu og gistu eina nótt í Boston. Einhver misskilningur varð svo á laugardaginn því við héldum að við ætluðum hittast klukkan eitt á laugardag en klukkan fjögur var enginn mættur og við farin að fletta upp númerinu hjá hjálparsveit skáta. Ekki hafði náðst í ferðalangana í síma en fyrir rest létu þau vita af sér og voru heil á húfi. Þau höfðu tekið smávegis útúrdúr og farið í verslun þar sem ProShopper 2000 hafði fundið hjá sér þörf að tæma eina fataverslun.

Þessa dagana gista Yngvi og Íris einnig hjá okkur. Helmingur þeirra var einnig á ráðstefnu en hinn helmingurinn hefur verið á ráfstefnu í búðum með Fríðu. Einmitt þessa stundina eru Yngvi og Íris týnd og búðarfólki gefin og eigum við ekki von á þeim fyrr en í kvöld þegar þau verða búin að rétta af viðskiptahalla Bandaríkjanna við útlönd.

Bjarni er byrjaður í fótboltanum og hefur gaman að. Þetta er að sjálfsögðu mest til gamans gert og mörkin ekki talin né úrslit skráð. Auðvitað telur maður þó í laumi og unnust fyrstu tveir leikirnir 15-4 og 14-5 en síðasti leikur tapaðist 10-3. Bjarni skoraði fyrsta markið í öðrum leik og furðaði nærstatt fólk sig á þessum óða manni sem hoppaði upp og niður við hliðarlínuna þegar það gerðist. Hann er greinilega upprennandi stjarna því fyrir utan markaskorun fékk hann tognun í nára og hælsæri af skónum. Á sunnudaginn eru tveir leikir á dagskrá og það verður fróðlegt að sjá hvort úthaldið dugir í það.

Unglingarnir í Ottawa eru komnir heim til sín úr svaðilför til Suður-Afríku, að mestu leyti óskemmdir. Það fór auðvitað eins og mig grunaði og voru þau hneppt í gíslingu af innfæddum eskimóum fyrir þekkingarleysi á heimsbókmenntum.

Á morgun er heilmikið á dagskrá: Afmælisveisla, ferð í dýragarð, heimsókn í cowtown í Fort Worth og fleira. Afmælisveislan átti að vera um síðustu helgi en ekkert varð úr henni vegna tafa á flugi. Þessu verður því öllu skellt saman í einn stóran pakka á morgun og það verður heilmikið fjör ef það rignir ekki á okkur.

5 Comments:

  • Það var eins dollara sekt á hverT vitlausT svar úr heimsbókmenntunum en tveggja dollara sekt við vitlausum Tinna svörum. Við borguðum þeim 100 dollara og málið varð dautt.

    BryndiS Ottawa

    By Anonymous Anonymous, at 7:33 AM  

  • Hvað gerir maður í cowtown ? (engin skemmtileg skot á mig takk) vonandi var gaman í afmælisveislunni... mmmmm kaka.

    By Anonymous Anonymous, at 1:56 AM  

  • Fullt af kúrekum í cowtown og rosa gaman. Kaldur bjór á hverju strái. Eitthvað fyrir okkur Rakel :) :)

    By Anonymous Anonymous, at 8:14 AM  

  • Sæl Gummi og Fríða, Varð bara segja hvað mér finst findið Gulrótagata hehehehe.. Bara flott sé ykkur svo bara eftir helgi...Eða á morgun Fríða mín.. Takk fyrir dagin.. Heiða

    By Anonymous Anonymous, at 12:57 AM  

  • Hæ fjölskylda.
    Mitt blogg er að andast að ég held, hef ekki nennt að setjast við tölvuna eftir að ég kom heim. Ég sendi kveðju og kossa frá okkur öllum hér. Kolla syss.

    By Anonymous Anonymous, at 2:51 AM  

Post a Comment

<< Home