Nafnarugl
Stóri bróðrinn á heimilinu hefur vanið sig á að kalla litla bróður sinn Barnið eða Litla Barnið. Í morgun vorum við að spyrja hann út í þetta og hann gaf þá einföldu skýringu að hann vildi bara kalla hann þetta. Bjarni sagðist þó vita að drengurinn héti tveimur nöfnum, Anton og Karl, og fannst snjallt að geta kallað hann hvoru nafninu sem hann vildi. Honum var bent á að hann héti sjálfur tveimur nöfnum og það virtist koma honum dálítið á óvart. Eftir augnabliks umhugsun kviknaði þó ljós: "Já! Bjarniþór og Guðmundsson!" Það er áhugavert að hann virðist hafa haldið að Bjarni væri stytting.
Á morgun byrjar fótboltavertíðin á bænum. Í vikunni kom loks símtal frá fótboltafélaginu sem við skráðum Bjarna í fyrir mörgum vikum síðan. Eftir að búið var að leiðrétta misskilning og koma öllum í skilning um að hann væri strákur en ekki eitthvað annað var hann skráður í lið sem heitir Smashers. Sá sem sér um liðið heitir Steve og er að öllum líkindum frá London. Hann heldur með Chelsea og fannst frábært að fá Íslending í liðið. Hann ákvað með það sama að Bjarni yrði númer 22, eins og Ædúr Gúdjonnsen. Allir leikirnir eru spilaðir á sunnudagseftirmiðdögum þ.a. við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekkert að gera á sunnudögum fram í apríl. Við fórum í íþróttabúðina í gær og keyptum takkaskó og legghlífar og annað sem þarf til þess að tækla lappirnar undan öðrum fimm ára krökkum.
Gönguferðinni sem var á dagskrá í dag var frestað vegna veðurs. Þetta minnir helst á íslenskt haust því hér er bjart og hvasst. Hitinn er örugglega ekki meiri en 10 °C og ekki er hundi út sigandi í slíkt. Dagurinn verður því notaður í tiltekt og prufukeyrslu á nýju ryksugunni. Það verður spennandi að sjá hvernig hún stendur sig. Sú gamla var og er slíkt skrapatól að ég var nærri búinn að skrifa um þá hörmung en ákvað að hlífa lesendum við þeirri sorg. Við skulum láta duga að minnast á að mér kom í hug orðið "skrippildi" sem ég held að Kalli frændi hafi fundið upp fyrir 25 árum og eigi einkarétt á. Nýja ryksugan drífur sjálf ef maður kýs að láta hana gera það og hlakka ég mikið til að prófa þann fídus.
Hey Ho, Silver! Away!

Hvatning fyrir ömmur að senda mér nammi.

3 Comments:
Það er greinilegt að "litla barnið" hafi góða matarlyst :) af myndinni að dæma. Bjarniþór verður flottastur í fótboltaliðinu og skorar örugglega flest mörkin, vonandi ekki sjálfsmörk þó. Þessi sjálfstýrða ryksuga minnir mig á þegar Simpson fjölskyldan fékk sér sjálfstýrt hús sem talaði eins og Pierce Brosnan og hann varð hrifin af Marge og reyndi að drepa Hómer. Gummi, passaðu þig á ryksugunni.
By
Anonymous, at 11:31 AM
Þar sem Anton borðar eigi nammi væriru nokkuð til í að áframsenda það þá á mig? 425 Daly Avenue Ottawa Ontario Canada, takk! Bryndís
By
Anonymous, at 11:07 AM
Ææj sorry Bryndís ,ég sá beiðni þína allt of seint og át allt nammið sjálf 2 kíló af líkkrís úr lakkrísgerðini og 4 poka af Nóa kroppi ;) Slatti gott ! ég skal muna eftir þér næst muuaahahahahaaaa....
By
Anonymous, at 12:11 PM
Post a Comment
<< Home