Fréttir frá Gulrótargötu

Sunday, February 05, 2006

Ofurskálin

Í dag er úrslitaleikurinn í þessum óskiljanlega ameríska fótbolta. Ég hef aldrei náð neinum tengslum við þetta sport en það er samt ágætt að horfa á þetta einu sinni á ári. Við Anton ætlum að fara til Gary Goodman og láta hann útskýra fyrir okkur hvað gengur á en á meðan ætla Bjarni og Fríða í bíó með Maggie og Becky. Það er dálítil athöfn að horfa á svona fótbolta þ.a. ég hef verið að undirbúa Anton með því að kenna honum að öskra dálítið og hvetja sína menn. Reyndar veit ég ekki hverjir eru að spila þ.a. hann getur öskrað hvenær sem honum sýnist. Kalli frændi sagði mér áðan að í öðru liðinu væri mikill skákáhugamaður og ætla ég að hafa það sem mitt lið í dag.

Annars er gott að frétta af fólkinu hér. Anton dafnar vel og það er ekki að sjá að hann hafi þurft að vera á vökudeild. Hann er duglegur að drekka matinn sinn og ég býst við að hann sé að drífa sig að stækka því hann sefur svo mikið. Það heyrist varla múkk í honum nema þegar hann vill fá að borða. Það þarf mjög lítið að hafa fyrir honum en það getur auðvitað breyst án fyrirvara. Við fórum út með hann í göngutúr í fyrsta skipti í gær. Við röltum aðeins um miðbæ Southlake og keyptum okkur kaffi og ís í nepjunni.

Það er gott að hafa stóran bróður á heimilinu því hann segist skilja hvað sá litli er að segja. Ekki skiljum við foreldrarnir hjalið en samkvæmt túlkinum eru heilmiklar umræður í gangi um íþróttir og teiknimyndir í sjónvarpinu. Við höfum ekki annarra kosta völ en að trúa því sem okkur er sagt og ekki ber á öðru en að það ríki traust á milli bræðranna.

2 Comments:

  • Jæja ertu farinn að skilja þessa Amerísku íþrótt betur ? Er hún ekki annars að deyja úr vegna offituvandamáls landsbúa ? Horfði á skemmtilegan þátt um feitasta mann í heimi, held hann hafi verið frá Texas, hann var hálft tonn, voða fallegur örugglega fyrir utan það að það sást eiginlega ekkert í neinn haus. Fríða mín viltu passa að láta ekki allt eftir honum bróður mínum þegar hann er að suða um hvað á að vera í matinn og ekki baka of margar smákökur fyrir næstu jól því hann kann sér ekki hóf.

    By Anonymous Anonymous, at 12:33 AM  

  • Ég held að Amerískan leggist ekki af á næstunni. Kanarnir eru einfaldlega of margir og þó sumir séu feitir eru aðrir mjóir. Ég var á veitingastað um daginn þar sem fréttirnar voru á í sjónvarpinu. Þar var frétt um að allar þessar skyndibitakeðjur sem er búið að koma upp í Evrópu hefðu leitt til þess að nú væru Evrópubúar farnir að þjást af offitu. Þetta fannst Könunum rosalega fyndið. Það er því best að halda áfram á æfingatækinu og muna að sá hlær best sem síðast hlær (og hann er líka síðastur að fatta).

    By Anonymous Anonymous, at 8:52 AM  

Post a Comment

<< Home