Fréttir frá Gulrótargötu

Friday, November 25, 2005

Við færum þakkir

Þakkargjörðardagur var í gær og þá er góðum Ameríkönum og gestum þeirra skylt að minnast þess sem þeir eru þakklátir fyrir. Við tókum að sjálfsögðu þátt í hátíðinni enda höfum við margt til að þakka fyrir.

Við erum þakklát fyrir að hafa fengið nóg að borða í gær og getað andað þrátt fyrir að öll holrými líkamans hafi verið fyllt af kalkúnum og tilheyrandi meðlæti. Einnig erum við þakklát fyrir það að Ásta hafi meikað það í heilu lagi frá Íslandi til Texas í gær. Fyrir þá sem ekki vita skal upplýst að hún ætlar að búa hjá okkur næstu mánuði og hjálpa okkur að borða kleinuhringi og hamborgara. Ætli hún verði ekki kynnt fyrir Krispy Kreme í dag? Miðað við fyrri reynslu okkar af íslensku veðri erum við líka þakklát fyrir að geta farið út úr húsi á stuttermabol í lok nóvember án þess að eiga það á hættu að fá lungnabólgu eða svartadauða. Einnig erum við þakklát fyrir það að húsfrúin hafi pantað sér tíma í nuddi í dag þannig að heimilisfaðirinn geti verið þakklátur fyrir að fá stutt frí frá slíkum störfum.

Jólaverslunartíð hefst opinberlega í dag. Ákafar húsmæður voru sumar hverjar búnar að stilla sér upp í röð fyrir framan sína uppáhaldsverslun klukkan fimm í morgun og ætluðu ekki að láta hagstæð tilboð framhjá sér fara. Samkvæmt okkar heimildum er best að fara á stjá og kaupa sér eitthvað fallegt eftir klukkan þrjú síðdegis því þá eru flestir kaupendur annað hvort farnir heim til sín í endurhæfingu eða liggja aðframkomnir út um víðan völl með blöðrur og líkþorn á fótum og hálfbrunnin krítarkort í höndunum. Við munum gera vettvangskönnun síðar í dag og kynna okkur ástandið úr öruggri fjarlægð.

Monday, November 21, 2005

Sænskt þema

Um helgina var sænskt þema hjá familien. Okkur vantaði sitthvað í búið og því var ákveðið að leggja land undir dekk og bruna til Plano til að kíkja í IKEA. Þangað er ekki stutt að fara og til að fylla fólk þolinmæði var fyrst stoppað á McDönälds. Þar þurfti einnig að spyrja til vegar og fékkst mycket bra leiðarlýsing þar. Glöddust allir í hjarta að sjá blátt og gult ferlíkið birtast út við sjóndeildarhring. Búðin er stærri en Sverige og ég er viss um það þar er fólk sem bara býr þarna. Það er allt til alls, meira að segja matsölustaðurinn sívinsæli, og maður getur sofið í nýju rúmi á hverri nóttu. Miðað við fjárútlát gekk ferðin vel og enginn þarf að láta sér leiðast næstu kvöld frekar en hann eða hún vill því nóg er til af sexköntum.

Næstráðandi heimilisins verður í nánustu framtíð sendur til Kanada að vinna fyrir kaupinu sínu. Áfangastaðurinn er Windsor í Ontario. Þetta þótti kjörið tilefni til þess að kanna möguleikann á því að heimsækja unglingana í Ottawa og voru fjarlægðarmælingar gerðar með aðstoð Google. Niðurstöður rannsóknanna eru þær að best sé að láta börnin um heimsóknirnar því þetta er lengra en að skreppa milli Árnes- og Rangárvallasýslna. Kannski að næsti kúnni verði svo tillitssamur að vera nær Ottawa.

Sunday, November 20, 2005

Here we go!

Þá er bloggsíðan sem allir hafa beðið eftir komin í loftið. Okkur þykir leitt að hafa valdið aðdáendum okkar vonbrigðum með því að bíða svona lengi með þetta en nú er biðin á enda. Fréttir eru engar í augnablikinu aðrar en þær að bumban stækkar og stækkar. Fylgist með frá upphafi því það er hér sem hlutirnir gerast!