42 (aftur)
- Við fórum til Íslands í tvær vikur.
- Við fórum aftur til Texas.
Annars er allt meinhægt að frétta héðan. Fréttir dagsins eru kuldi, óveður og ófærð. Í gær var 26 hiti en í morgun var -1 gráða. Sæmilegasta breyting það. Mörgum skólum var lokað og ég fór afar varlega af stað í vinnu en síðan kom á daginn að það var býsna greiðfært og hef ég sennilega sjaldan verið svona fljótur í vinnuna því það voru svo fáir á ferðinni.
Reynt var að bæta móralinn í vinnunni með því að koma upp vatnsskemmtigarði á nokkrum skrifstofum. Eitthvað uppi á þaki eða einhverjar leiðslur gáfu sig og því flæddi vatn út um allt og var tommudjúpt sums staðar. Nokkrir bókaskápar lentu í vatninu og bókstaflega leystust upp og urðu að mylsnu þegar spónaplöturnar sugu í sig vatnið. Allir voru svo sendir heim um þrjúleytið því spáin fyrir kvöldið var á þá leiðina að ekki var talið öruggt að senda fólk út í umferðina eftir klukkan fimm á sumardekkjunum. Sandi og salti var úðað út um allt og breyttist því snjór og klaki í kunnuglega gráa drullu en samt er vissara að fara varlega þegar svona færð er hér því þótt við Íslendingar þykjumst vera fullfærir um að keyra í þessu þá er ekki sömu sögu að segja af þeim sem sjá svona á eins til tveggja ára fresti.
Á morgun kemur sólin víst á ný og þá á þessu frosti og öðru veseni að linna.
