Fréttir frá Gulrótargötu

Saturday, March 17, 2007

Vorverkin

Undirbúningur fyrir sumarið er hafinn. Við erum búin að sannreyna að grillið virkar ennþá og sólin um miðjan dag er orðin nægilega heit til þess að það taki því að setja sólskyggnið upp bak við hús. Við skruppum í Home Depot um daginn að kaupa nokkur blóm og ein dós af viðarvörn var gripin í leiðinni. Ég ætlaði að skvetta á girðinguna svo hún liti aðeins betur út en skvettan tók lengri tíma en ætlað var. Ætli það sé ekki búið að bera á um það bil fjórðung og það hefur tekið meiri tíma en ég ætlaði mér í allt verkið. Það eru áreiðanlega tveir heilir dagar eftir (þetta er stór girðing). Upprunalega dósin er líka löngu búin og fleiri bíða í bílskúrnum.

Svo þarf annað hvort að spila miklu meiri fótbolta á blettinum eða leggjast á hnén og byrja að reyta illgresi. Það sprettur eins og, ööö, illgresi og af nógu að taka. Margar tegundir líka.

Síðast en ekki síst þarf að fara að taka fram stuttbuxurnar því það er ekki langt í það að hitastigið verði óhentugt fyrir síðbuxur. Það er þó ekki um það að ræða að mæta í stuttbuxum í vinnuna, nema kannski á föstudögum. Alla aðra daga skal það vera buxur og skyrta en gallabuxur eru leyfðar á föstudögum. Kannski er lausnin á því að vera í fínum fötum í heitu veðri sú að mæta í dragt. Það er aldrei að vita nema maður prófi það.

Best að snúa sér að bakstrinum og mæta svo í handsnyrtingu.

Sunday, March 11, 2007

Ungur maður á uppleið 2

Um síðustu helgi fór fram heilmikið mót félagsliða í 12 - 14 ára flokki í frjálsum íþróttum.

Eitt Íslandsmet var sett á mótinu en það var í 4 x 200 m boðhlaupi 12 ára stráka. Þar hljóp sveit ÍR á 2:04,47 mínútum og þar með er hr. Ketill orðinn Íslandsmeistari og Íslandsmethafi.

Húrra!

Friday, March 02, 2007

Ungur maður á uppleið



Í dag, 2. mars, á afmæli hr. Ketill. Hann er orðinn 12 ára, ótrúlegt en satt. Hér sést hann í góðum félagsskap á mynd, sem var tekinn þegar hann mætti á sína fyrstu tölvuráðstefnu í mars, 2006.

Til hamingju með daginn, Ketill!